Sumarstarfsmaður óskast í Skálholti
- 10 hours ago
- 1 min read
Skálholtsstaður óskar eftir öflugum og áreiðanlegum starfsmanni í sumarstarf frá maí til september.
Við leitum að duglegum og metnaðarfullum einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum og hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum utandyra í fallegu umhverfi.
Helstu verkefni:
• Grassláttur með orfi og sláttutraktorum
• Almenn umhirða og hreinsun á útisvæðum
• Létt verkamannstörf, t.d. málun og viðhald
• Aðstoð við ráðsmann og ýmis tilfallandi verkefni
Kröfur:
• Vinnuvélaréttindi
• Geta unnið sjálfstætt og fylgt fyrirmælum
• Dugnaður og metnaður í starfi
• Enskukunnátta nauðsynleg (íslenska ekki skilyrði)
Vinnutími:
08:00 – 16:00 alla virka daga
Laun samkvæmt kjarasamningi Bárunnar.
Skálholt er einn merkasti sögustaður Íslands og býður upp á einstakt vinnuumhverfi í fallegu umhverfi.
Umsóknir sendist á skalholt@skalholt.is
Umsóknarfrestur til 23 mars.




Comments