top of page

Fermingarfjör haldið í fjórða sinn í Skálholti.

Feb 10
1 min read

 Í febrúar og mars í ár verður í fjórða sinn boðið upp á fermingarfjör í Skálholti. Í ár taka fjórir hópar fermingarbarnanna þátt í dagskránni, bæði frá Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu. Fermingarfjörið hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem áhugaverð viðbót við hefðbundinn fermingarundirbúning og vakið mikla ánægju meðal þátttakenda.


Dagskrá fermingarfjörsins er fjölbreytt og miðar að því að fræða og virkja börnin á lifandi hátt. Hún hefst með sameiginlegri kynningu, að því loknu er hópnum skipt upp þar sem sum taka þátt í hópefli en önnur fara í ratleik um Skálholtsstað og kynnast sögu og umhverfi staðarins. Í hádeginu er boðið upp á pizzu á veitingastaðnum Hvönn.

Eftir hádegi fá fermingarbörnin kynningu á orgelinu í dómkirkjunni, þar sem Jón Bjarnason organisti leiðir þau inn í heim hljóðfærisins og tónlistarinnar. Dagskránni lýkur með kyrrðarstund í kirkjunni og að lokum er boðið upp á kaffihressingu áður en haldið er heim.


Í Fermingarblaði Morgunblaðsins í fyrra mátti lesa viðtöl við tvö fermingarbörn úr Kópavogskirkju þar sem þau lýstu fermingarfræðslunni sinni. Þar kom meðal annars fram að það sem stóð upp úr í undirbúningnum var dagsferðin í Skálholt og þátttaka í fermingarfjöri sem þau sóttu fyrr á árinu.


Umsjón með dagskránni hafa Pétur Ragnhildarson, prestur í Breiðholtsprestakalli, Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti og Jón Bjarnason organisti. Dagskráin nýtur jafnframt styrks úr Héraðssjóði Suðurlandsprófastsdæmis.

Fermingarfjörið í Skálholti hefur þróast jafnt og þétt frá því fyrsti hópurinn kom árið 2022. Árið 2023 varð að gera hlé vegna framkvæmda í Skálholtskirkju, en síðan þá hefur dagskráin verið í fullum gangi þar sem nýir hópar fermingarbarna hafa notið fræðslu og skemmtunar í Skálholti.



2 Comments


hoseamatt
2 days ago

Sæl kæri lesand! Ég hef verið að leita að upplýsingum um íþróttalið og fann þessa síðu í leitinni. Ég fór að skoða og endaði á znaki.fm/is-en/casino/ til að sjá hvað væri að. Mér líkaði strax hversu makið af upplýsingum er á einum stað, vel sett fram. Síðan hefur hluta sem sýnir lið sem tengjast Iceland og erlendis á skýran hátt. Ég las um lið sem ég vissi ekki um og tók eftir því hversu makið er í boði. Mér líkaði hversu skýrt er hvert lið er skýrt með upplýsingum um leikmenn og þjálfara. Ég var svo ánægð að ég bókmörkuðu þessa síðu og mælt með henni til vinar míns strax í gærdag.

Edited
Like

Slope
Oct 02

Slope Game has a natural competitive element because everyone can understand the goal: survive longer and improve the score. Sharing personal records with friends can create friendly competition without requiring complicated rules or rankings.

Like
bottom of page