Föstumessur og samtal á Mosfelli
- Herdís Friðriksdóttir
.png/v1/fill/w_320,h_320/file.jpg)
- 15 minutes ago
- 2 min read
Það er löng og gróin hefð fyrir miðvikudagsmessum í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli á föstutímanum. Í ár er engin undantekning á því og alla miðvikudaga kl. 19.30 er boðið upp á messu með sérstöku íhugunarefni og endað með kirkjukaffi og samtali á prestsetrinu.
Öskudagurinn sjálfur markar upphaf föstunnar sem er tími iðrunar og það er tjáð með því að öskukross er teiknaður á enni með þessum orðum: “Minnstu þess maður að þú ert mold. Gjörðu iðrun og trúðu fagnaðarerindinu”.
Í messu Öskudagsins, sem í ár er 18. febrúar, mun Guðmundur Brynjólfsson djákni og rithöfundur leggja út af þessum orðum í samhengi kristinnar trúar.
Þann 25. febrúar verður sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, ráðgjafi og Laugdælingur, ræðumaður kvöldsins og ætlar að rifja upp kynni sín við hinn stóra áhrifavald frú Rósu B. Blöndals, skáldkonu, kennara og prestsfrú á Mosfelli.
Viku seinna, 4. mars, verður með okkur Magnús Hlynur Stefánsson, fréttamaður með meiru. Magnús Hlynur er þekktur fyrir jákvæðar, manneskjulegar og hlýjar fréttir hvar sem hann miðlar sínu efni. Hann ræðir um hvernig hægt er að taka eftir og sjá hið góða í samfélaginu, innan um allt það sem dregur niður.
Þann 11. mars er það sr. Jóhanna Magnúsdóttir, sóknarprestur og meðferðarfulltrúi sem hugleiðir með okkur spurninguna „Hver er mestur í himnaríki?“ í ljósi sjálfsmyndar og verðmæti manneskjunnar.
18. mars kemur til okkar Guðni Ágústsson fv. ráðherra og Sunnlendingur, og hann ræðir um Mosfellinga fyrr og nú og áhrif þeirra í uppbyggingu samfélagsins. Guðni er mikill sögumaður og fróður mjög um héraðið og sögu þess og þess fáum við að njóta.
Í síðustu föstumessunni sem er 25. mars, mun dr. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræðingur og prófessor emerita fjalla um hið sígilda vandamál um illskuna í heiminum. Hvernig birtist hún, hvaðan kemur hún, er eitthvað sem við getum gert til að sporna við niðurrífandi áhrifum hennar?
Fastan er tími til að koma saman, til að íhuga og iðrast, til að minnast og muna. Velkomin í föstumessur og samfélag í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir
Sóknarprestur í Skálholtsprestakalli













Comments