top of page

Vígslubiskup lætur af embætti

  • 17 hours ago
  • 1 min read

Vígslubiskupinn í Skálholti, sr. Kristján Björnsson, hefur látið af þjónustu sinn sem vígslubiskup. Þar til nýr vígslubiskup verður kosinn munu vígslubiskupinn á Hólum og biskup Íslands annast hluta þjónustunnar. Þá munu vígðir þjónar og annað starfsfólk í Skálholti vinna áfram að verkefnum og viðburðum sem tengjast Skálholti í samráði við stjórn Skálholts, prófast Suðurprófastsdæmis o.fl.


Gert er ráð fyrir því að nýr vígslubiskup verði kosinn að loknu kirkjuþingi í haust þar sem yfirfara þarf starfsreglur um kosningu vígslubiskupa.

 
 
 

Comments


bottom of page