Verið velkomin í Skálholt um páskana!
- 5 hours ago
- 1 min read
Í Skálholti verður fjölbreytt helgihald, sögugöngur og vöfflur um páskana!
Í Skálholti er mikið um að vera þessa páskahátíð sem endranær. Til að mynda má nefna ríkulegt helgihald með fjölbreyttu sniði, vandaðan tónlistarflutning, sögugöngur með leiðsögn og svo er veitingastaðurinn góði, Hvönn, opinn. Þar má til að mynda gæða sér á vöfflum með rjóma.
Skálholtsdómkirkja verður opin alla páskahátíðina frá kl 9 - 18 en þar fer fram ríkulegt og fjölbreytt helgihald.
Skálholt er menningarlegur og kirkjulegur höfuðstaður landsins og þar hefur mikil uppbygging átt sér stað um árabil. Boðið verður upp á söguleiðsögn á fimmtudag, föstudag og laugardag kl 14:00. Leiðsögnin hefst á kirkjutröppunum og kostar 1500 kr á mann.
Veitingastaðurinn Hvönn verður opinn alla páskana frá kl 11:00 - 20:00. Boðið er upp á ljúffengar veitingar úr héraði, en hægt verður að kaupa vöfflur með rjóma og sultu alla helgina.
Skálholt er á fögrum stað og umkringt áhugaverðum viðkomustöðum. Svo það verður enginn svikinn af því að koma í Skálholt um þessa páska, hvort sem þú býrð á svæðinu eða kemur lengra að.
Allar nánari upplýsingar um viðburði, tímasetningar og helgihald má finna undir viðburðir hér á heimasíðunni.





Comments