top of page

Skálholtshátíð 2026

  • 23 hours ago
  • 1 min read

Skálholtshátíð er haldin hátíðleg á hverju ári í Skálholti. Hana ber jafnan upp um helgina nálægt 20. júlí sem er Þorláksmessa á sumar. Þann dag árið 1198 á voru bein Þorláks helga Þorlákssonar tekin úr jörðu og lögð í skrín.


Fyrsta hátíðin var haldin í Skálholti árið 1949, áður en núverandi Skálholtskirkja var byggð. Í dag er Skálholtshátíð mikil hátíð þar sem öllum er boðið til veislu í Skálholtskirkju með helgiathöfnum, tíðarsöng, tónleikum og fróðleik. Pílagrímar ganga til hátíðarmessu m.a. frá Þingvöllum og Reynivöllum.


Dagskrá er vönduð og menningarleg en henni er stýrt af Solveigu Láru Guðmundsdóttur í ár.


Laugardagurinn 18. júlí


Kl. 11:00 Útimessa við Þorlákssæti

Kl. 12:00 Hádegisverður

Kl. 14:00 Málþing um altarismynd Nínu Tryggvadóttur- Skálholtsfélagið hið nýja

Kl. 15.30 Kaffi

Kl. 16:00 Tónleikar í Skálholtsdómkirkju

Kl. 17:00 Ragnheiðarganga

Kl. 18:00 Tíðagjörð Ísleifsreglunnar

Kl. 19:00 Kvöldverður

Sunnudagurinn 19. júlí


Kl. 9:00 Tíðagjörð Ísleifsreglunnar og í framhaldi aðalfundur Ísleifsreglunnar.

Kl. 11:00 Orgeltónleikar - Pétur Nói Stefánsson

Kl. 12:00 Hádegisverður

Kl. 14:00 Hátíðarmessa - Biskup Íslands prédikar

Kl. 15:00 Kaffi

Kl. 16:00 Hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju


Athugið að enn er unnið að dagskrá hátíðarinnar og enn geta braytingar orðið á henni.

 
 
 

Comments


bottom of page