top of page

Pílagrímagöngur á Skálholtshátíð

  • 6 hours ago
  • 2 min read

Í ár verður gengið frá tveimur stöðum í Skálholt á Skálholtshátið. Fjögurra daga ganga verður frá Reynivallakirkju í Kjós og eins dags ganga frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum.


Pílagrímaganga frá Reynivöllum í Kjós í Skálholt 16.-19. júlí 2026


Pílagrímaganga verður gengin frá Reynivallakirkju í Kjós að Þingvallakirkju til Skálholtsdómkirkju á Skálholtshátíð. Leiðinni er skipt upp á fjóra göngudaga frá fimmtudeginum 16. júlí til sunnudagsins 19. júlí og hefjast göngurnar kl. 9:00 alla daganna. Göngudagarnir eru mislangir, en hverjum er frjálst að skrá sig og ganga eina dagleið eða part úr dagleið.


Dagur 1:

Reynivallakirkja að brúnni í Stíflisdal.


Dagur 2:

Stíflisdalur að Þingvallakirkju.


Dagur 3:

Þingvallakirkja að Neðra-Apavatni.


Dagur 4:

Neðra-Apavatn inn í Skálholtsdómkirkju.


Gangan er fólki að kostnaðarlausu, en gert er ráð fyrir að fólk finni sér gistingu sjálft. Útbúnaður og nesti er á ábyrgð hvers og eins. Hluti göngunnar er gengin í kyrrð og við hverja áningu er stutt íhugun, bæn eða ritningarlestur. Fólk gengur á sínum hraða í þögn eða spjalli, allt eftir vilja og þörf hvers og eins.


Göngustjórar pílagrímagöngunnar eru hjónin sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur í Esjuprestakalli (arna.gretarsdottir@kirkjan.is, gsm. 865 2105) og Rúnar Vilhjálmsson. Vinsamlega skráið ykkur með því að hafa samband við sr. Örnu.


Pílagrímaganga frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum heim í Skálholt 19. júlí 2026


Brottför verður með rútu frá Skálholti kl. 7:00.


Stutt helgistund verður í Ólafsvallakirkju kl. 7:30 og síðan gengin um 18 km. leið frá Ólafsvallakirkju og sem leið liggur í átt á Fjalli á Skeiðum. Síðan er þræddur vestur hluti Vörðufells, yfir brúna við Iðu og loks heim í Skálholti. Göngunni lýkur á Skálholtshátíð þar sem pílagrímar koma einnig frá Apavatni þennan dag. Gengið er til kirkjunnar kl. 13:30. Kirkjukaffi verður í lok messunnar. Göngustjóri er sr. Axel Á. Njarðvík.


Gangan er fólki að kostnaðarlausu en gert er þó ráð fyrir að pílagrímar greiði fyrir rútufarið eða kr. 2.000. Útbúnaður og nesti er á ábyrgð hvers og eins. Hluti göngunnar er gengin í kyrrð og við hverja áningu er stutt íhugun, bæn eða ritningarlestur. Fólk gengur á sínum hraða í kyrrð þagnarinnar hluta leiðarinnar.


Skráning um þátttöku berist til sr. Axels á netfangið axel.arnason@kirkjan.is


Nánar um Pílagrímagöngur


Pílagrímagöngur eru hluti af hinum kristna trúar- og menningararfi. Þau sem ferðast til heilagra staða eru kallaðir pílagrímar. Þetta orð er komið úr miðaldalatínu (pelegrinus) en á rætur í klassískri latínu (peregrinus, útlendingur). Slíkar göngur eru farnar af misjöfnum ástæðum; í þakkargjörð, í yfirbótarskyni, til andlegrar- og líkamlegar heilsubótar eða af trúarlegum og/eða menningarlegum áhuga. Gengið er í áföngum en hlé eru notuð til bænahalds, ritningarlesturs eða til íhugunar og kyrrðar.


Sjö lyklar pílagrímsins eru: Frelsi, Einfaldleiki, Rósemi, Kyrrð (Þögn), Æðruleysi, Samkennd og Andlegur vöxtur. Þessir lyklar verða íhugaðir á leiðinni.


Pílagrímarnir frá Reynivöllum og Ólafsvöllum sameinast í göngu inn kirkjugólf Skálholtsdómkirkju við upphaf hátíðarguðsþjónustu kl. 14:00 við söng pílagrímsins, Fögur er foldin þar sem skírnarheitið er endurnýjað.


Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup emeritus leiðir dagskrá og helgihald Skálholtshátíðar 2026.

 
 
 

Comments


bottom of page