Hvítasunnuhelgin í Skálholtsprestakalli
- 19 hours ago
- 1 min read
Hvítasunnan er ein af stórhátíðum kirkjunnar. Í Skálholtsprestakalli er löng hefð fyrir að fermingarbörn vetrarins játist Jesú Kristi sem leiðtoga lífs síns í messu safnaðarins. Um helgina verða þrjár messur í prestakallinu á þessari hátíð heilags anda.
Í Miðdalskirkju í Laugardal fermast þrír drengir á hvítasunnudag kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og Jón Bjarnason leikur á orgel og leiðir safnaðarsöng. Meðhjálpari er Ragnheiður Hilmarsdóttir.
Í Skálholtsdómkirkju fermast 10 börn í hátíðarguðsþjónustu kl. 14 á hvítasunnudag. Þar þjóna sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur og Bergþóra Ragnarsdóttir djákni. Hinn frábæri Skálholtskór syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Hátíðartón Bjarna Þorsteinssonar, sem er ómissandi á öllum stórhátíðum verður sungið.
Á annan hvítasunnudag verður fermingarguðsþjónusta í Mosfellskirkju í Grímsnesi kl. 13. Þar þjóna sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og Jón Bjarnason pumpar orgelið. Meðhjálpari er Hörður Óli Guðmundsson.
Gleðilega hvítasunnuhátíð!




Comments