Er gjaldskylda í Skálholti?
- 3 days ago
- 1 min read
Updated: 2 days ago
Einfalda svarið við því er nei, en tekið er á móti frjálsum framlögum á nýjum skiltum sem hafa verið sett upp á bílastæðum við Skálholtsdómkirkju.
Skálholtsstaður er einn mikilvægasti kirkju- og sögustaður þjóðarinnar. Stjórn Skálholts hefur ákveðið að innheimta ekki aðgangs- eða aðstöðugjöld, heldur bjóða gestum að leggja fram frjáls framlög þegar staðurinn er sóttur heim. Hægt er að greiða frjáls framlög í gegnum QR kóða á skiltum við bílastæði eða inni í kirkjunni.
Með þessari ákvörðun vill stjórnin tryggja að Skálholt sé opið gestum, óháð greiðslugetu, og að aðgangur að helgum stað sé öllum opinn.
Í Skálholti er góð aðstaða fyrir gesti. Skálholtsdómkirkja er opin alla daga frá kl 9:00 – 18:00, salerni og bílastæði eru til staðar með þjónustu allt árið um kring. Kirkjuverðir veita gestum upplýsingar og þjónustu og bjóða upp á leiðsagnir. Að auki er mikill metnaður lagður í snyrtilegt og aðlaðandi umhverfi.
Á veitingastaðnum Hvönn í Skálholti fær íslensk matarmenning að njóta sín á skapandi hátt með hráefni úr nærumhverfinu. Hótel Skálholt býður upp á fjölbreytta og notalega gistingu fyrir einstaklinga og hópa.
Frjáls framlög gerir staðnum kleift að standa undir rekstri, viðhaldi og varðveislu staðarins án þess að breyta eðli hans eða aðgengi.
Við þökkum öllum sem styðja Skálholt með framlögum sínum.





Comments