Aðalfundur Skálholtsfélagsins hins nýja
- 1 day ago
- 1 min read

Ágætu félagar í Skálholtsfélaginu hinu nýja.
Stjórn Skálholtsfélagsins hins nýja boðar til aðalfundar fimmtudaginn 18 júní 2026 kl 16:00 í Skálholti.
Venjuleg aðalfundarstörf, þar sem farið verður yfir starf félagsins á síðasta starfsári, helstu verkefni sem unnið er að og fjárhag félagsins.
Jafnframt mun Bjarni Snæbjörn Jónsson fara yfir umræður stjórnar Skálholts og Þjóðkirkjunnar, sem átt hafa sér stað að undanförnu, um framtíðarþróun starfseminnar í Skálholti.
F.h. stjórnar Skálholtsfélagsins hins nýja,
Erlendur Hjaltason
Formaður
Tími og staðsetning
18. jún. 2026, 16:00 – 18:00
Safnaðarheimilið, Skálholti, Skálholt, 806, Ísland




Comments