top of page

Skálholtshátíð 16. - 18. júlí

Skálholtshátíð verður stóru helgina 16. - 18. júlí og þar er hátíðarmessan sunnudaginn 18. júlí kl. 14. Á dagskrá eru tónleikar, heilgihald, málþing, langar og stuttar pílagrímagöngur og örstuttar vettvangsferðir með leiðsögn.

Verið öll velkomin á Skálholtshátíð
Sjá aðra viðburði
Skálholtshátíð 16. - 18. júlí
Skálholtshátíð 16. - 18. júlí

TÍMI & STAÐSETTNING

16. júl. 2021, 19:00 – 18. júl. 2021, 15:00

Skálholt, Skálholt, Iceland

UM VIÐBURÐINN

Dagskrá Skálholtshátíðar 2021:

Föstudagur 16. júlí:

Kvöldbæn í Skálholtsdómkirkju kl. 18. Hópur presta leiðir tíðargjörðina. Kvöldverður í Skálholtsskóla.

„Heyr himnasmiður“ Tónleikar kl. 20

Tónleikar Hjörleifs Valssonar, fiðluleikara, og Jónasar Þóris, organista og píanóleikara í Skálholtsdómkirkju kl. 20.

Laugardagur 17. júlí:

Útimessa við Þorlákssæti kl. 9

Safnast saman við kirkjudyr kl. 9. Skálholtshátíð sett við Þorlákssæti.

„Ljós yfir land“

Málþing um dr. Sigurbjörn Einarsson kl 10

á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar. Bogi Ágústsson stýrir málþinginu. Karl Sigurbjörnsson, biskup, flytur ávarp. Erindi flytja Arnfríður Guðmundsdóttir, Magnús Þorkell Bernharðsson, Gunnlaugur A. Jónsson og Kristján Björnssson. Málþingið er haldið í sal skólans kl. 10-12. Hádegisverður í Skálholtsskóla.

Ragnheiðarganga Friðriks Erlingssonar kl. 12.45

Hefst við kirkjudyr kl. 12.45. Gengið um minjasvæðið og aðra staði Ragnheiðar Brynjólfsdóttur undir leiðsögn Friðriks Erlingssonar, rithöfundar. Minnst er 380 ára frá fæðingu Ragnheiðar og 360 ára frá því hún sór eiðinn.

Síðdegiskaffi í Skálholtsskóla.

Hátíðartónleikar í Skálholtshátíðar kl. 16

Johann Sebastian Bach, Bruckner, Þorkell Sigurbjörnsson og fleiri. Hildigunnur Einarsdóttir mezzosópran syngur. Skálholtskórinn syngur kirkjutónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Konsertmeistari er Brian J. Hong. Rannveig Marta Sarc, fiðla, Svava Bernharðsdóttir, víóla, Ólöf Sigursveinsdóttir, selló, Alexandra Kjeld, kontrabassi, og Jón Bjarnason, orgel. Stjórnandi Skálholtskórsins er Jón Bjarnason. Kvöldbæn í Skálholtsdómkirkju kl. 18.

Hátíðarkvöldverður fyrir gesti og flytjendur á hátíðinni kl. 19.

Sunnudagur 18. júlí, Skálholtshátíð:

Morgunbæn í Skálholtsdómkirkju kl. 9 árdegis.

Orgeltónleikar Jóns Bjarnasonar kl. 11

Orgelverk eftir J.S Bach. Hádegisverður í Skálholtsskóla.

Hátíðarmessa á Skálholtshátíð kl. 14.

Skálholtskórinn syngur. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Hildur Björk Hörpudóttir, sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sr. Sveinn Valgeirsson, sr. Arna Grétarsdóttir, sr. Axel J. Árnason og sr. Dagur Fannar Magnússon þjóna fyrir altari með sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur, frú Agnesi M. Sigurðardóttur og sr. Kristjáni Björnssyni, sem prédikar. Meðhjálparar eru Bjarki Geirdal Guðfinnsson og Eva Bryndís Ágústsdóttir. Í upphafi messu er móttaka pílagríma frá Hólum í Hjaltadal, Reynivöllum og Þingvöllum.

Kirkjukaffi í Skálholtsskóla.

Hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju kl. 16

Ávörp. Hátíðarerindi: Þórunn Valdimarsdóttir, rithöfundur: „Saga kristni og trúar. Hvar stöndum við nú?“ Skálholtskórinn og einleikarar flytja tónlist, m.a. lag Gunnars Þórðarsonar við Allt einsog blómstið eina. Stjórnandi Skálholtskórsins er Jón Bjarnason, organisti. Vígslubiskup, sr. Kristján Björnsson, stýrir dagskrá og slítur Skálholtshátíð 2021 með fararbæn og blessun.

Kvöldbæn í Skálholtsdómkirkju kl. 18. Hópur presta leiðir tíðargjörðina.

Upplýsingar og skráning í Skálholti s. 486 8870, hotelskalholt@skalholt.isog á vef Skálholts, www.skalholt.is

Skálholtshátíð verður stóru helgina 16. - 18. júlí og þar er hátíðarmessan sunnudaginn 18. júlí kl. 14. Á dagskrá eru tónleikar, heilgihald, málþing, langar og stuttar pílagrímagöngur og örstuttar vettvangsferðir með leiðsögn. Eftir hámessu sunnudagsins er hátíðardagskrá eftir kirkjukaffið í skólanum með hátíðarræðu Þórunnar Erlu- Valdimarsdóttur, rithöfundar og sagnfræðings, söng Skálholtskórsins úr óperunni Ragnheiði og ávörpum. Núna eru 380 ár frá fæðingu Ragnheiðar Brynjólfsdóttur og verður þess minnst sérstaklega í hátíðardagskránni. Einnig eru liðin 110 ár frá fæðingu dr. Sigurbjörns Einarssonar biskups og verður þess minnst með málþingi á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar laugardaginn 17. júlí kl. 10-12.

Fyrir Skálholtshátíðina eru pílagrímagöngur sem enda með inngöngu í hátíðarmessuna á sunnudeginum. Lengsta pílagrímagangan er frá Hólum í Hjaltadal yfir Kjöl og allar götur í Skálholt. Leiðsögumaður er sr. Dagur Fannar Magnússon. Önnur löng ganga er frá Bæ í Borgarfirði og þriðja frá Reynivöllum í Kjós. Leiðsögumenn eru sr. Elínborg Sturludóttir og sr. Arna Grétarsdóttir. Hægt er að skrá sig til göngu dag fyrir dag eða bara einn dag. Síðustu dagleiðir á sunnudagsmorgni eru annars vegar frá Neðra Apavatni og hins vegar frá Bræðratungu með ferju yfir hjá Hrosshaga.

Föstudagskvöldið 16. júlí kl. 20 verða Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir með tónleika á fiðlu og orgel í kirkjunni.

Laugardaginn 17. júlí er útimessa við Þorlákssæti kl. 9, málþing um Sigurbjörn Einarsson kl. 10, vettvangsferðir kl. 13.30 og hátíðartónleikar undir stjórn Jóns Bjarnasonar kl. 16.

Sunnudaginn 18. júlí er Jón Bjarnason með orgeltónleika kl. 11, hátíðarmessan er kl. 14 með skrúðfylkingu og inngöngu pílagríma og svo er hátíðardagskráin kl. 16.

Í messunni og hátíðardagskránni og á tónleikum laugardagsins syngur Skálholtskórinn undir stjórn Jóns Bjarnasonar og flytur verkúr óperunni um Ragnheiði en í ár eru liðin 380 ár frá fæðingu hennar. Hátíðarræðuna flytur Þórunn Valdimarsdóttir, rithöfundur og sagnfræðingur.

Frá föstudegi til mánudagsmorguns mun Ísleifsreglan vera starfandi og leiða tíðarsöng með morgunsöng og kvöldbæn. Hægt verður að fá gistingu í Skálholtsskóla og allur viðgjörningur er þar líka, málsverðir og kaffi alla helgina.

Skálholtsvinir eru hvattir til að fjölmenna til hátíðarinnar og taka þátt í einu, mörgu eða öllu, á einn eða annan hátt. Skráning í gistingu er hjá Sigurbjörgu í Skálholti í hotelskalholt@skalholt.is og í síma 486 8870. Skráning í pílagrímagöngurnar eru á viðburðarsíðunum hér á heimasíðu Skálholts.

DEILA VIÐBURÐINUM

bottom of page