top of page

Selló, söngur og flygil tónleikar

fös., 10. apr.

|

Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari, Désirée Mori mezzósópran og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari kanna hverfulleikann í allri sinni dýrð. Á efnisskrá tónleikanna eru ljóðaflokkar eftir Frank Bridge og Jake Heggie fyrir mezzósópran, selló og píanó sem fjalla um að kveðja.

Selló, söngur og flygil tónleikar
Selló, söngur og flygil tónleikar

Tími og staðsetning

10. apr. 2026, 17:00 – 18:30

Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, 806 Selfoss, Ísland

Um viðburðinn

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari, Désirée Mori mezzósópran og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari kanna hverfulleikann í allri sinni dýrð.

 

Á efnisskrá tónleikanna eru ljóðaflokkar eftir Frank Bridge og Jake Heggie fyrir mezzósópran, selló og píanó sem fjalla um að kveðja, að kveðjast og að sættast við hverfulleika lífsins. Ljóð Ölmu Mahler og Önnu Þorvaldsdóttur eru eins og ljósmyndir af fallegum augnablikum - augnablikum sem ber að njóta því þau koma aldrei aftur. Frumflutt verður "Verblühend",  nýtt verk eftir svissneska tónskáldið Samuel Cook. Einnig er á efnisskránni sónata fyrir selló og píanó eftir Samuel Barber, en æðisgengin dramatík hennar og undurfögur lýrík rímar vel við þessa ljóðadagskrá sem er uppfull af fallegum tónamálverkum og tilfinningaþrungnum söngvum.

 

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Menningarsjóði FÍH.

 


Deila viðburði

bottom of page