Seiðandi þögn í gegnum tónlist
lau., 28. feb.
|Skálholtsdómkirkja
Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngkona, og Karin Viktoria Jakobsson, píanóleikari, sækja Ísland heim með stuttu tónleikaferðalagi, en þær eru báðar búsettar í Kaupmannahafnarborg. Tónleikarnir hefjast kl 16.00 og aðgangseyrir er 2500 kr.


Tími og staðsetning
28. feb. 2026, 16:00 – 17:00
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Ísland
Um viðburðinn
Laugardagstónleikar í Skálholtskirkju
Laugardaginn 28. febrúar 2026 - kl 16:00
- SEIÐANDI ÞÖGN í gegnum tónlist -
Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngkona, og Karin Viktoria Jakobsson, píanóleikari, sækja Ísland heim með stuttu tónleikaferðalagi, en þær eru báðar búsettar í Kaupmannahafnarborg.
Á tónleikunum í Skálholtskirkju munu þær flytja grísk þjóðlög í útsetningum M. Ravel, þrjú ljóð eftir ljóðskáldið Edith Sitwell í tónum eftir W. Walton, norræna tónlist úr ýmsum áttum – Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, auk undurfagra ljóðaflokksins Mädchenblumen eftir R. Strauss.
Tónleikarnir hefjast kl 16:00 og eru um klukkustund að lengd.



