Óskalögin við orgelið
mið., 26. jún.
|Skálholtsdómkirkja
Jón Bjarnason sest við orgelið 26. júní og spilar óskalög gesta. Fólk getur valið um 100 lög af lista og hægt verður að fylgjast með texta á skjá svo hægt sé að syngja með. Aðgangur er ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum


Tími og staðsetning
26. jún. 2024, 20:00 – 20:50
Skálholtsdómkirkja, Skálholt
Um viðburðinn
Óskalögin við Orgelið er viðburður þar sem gestir fá að velja hvaða lög þau vilja heyra spilað á orgelið í Skálholtskirkju. Jón Bjarnason ætlar að setjast við orgelið og spila óskalögin okkar 26. júní kl 20:00. Hægt verður að velja úr fjölbreyttum lista laga. Textanum verður varpað að skjá svo hægt verður að syngja með orgelleiknum.
Aðgangur er ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum. Hægt er að leggja beint inn á Fylgisjóð Skálholtsdómkirkju með millifærslu: 0133-15-1647, kt 610172-0169.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Verið öll velkomin!



