top of page

Messa og fræðsla 22. nóvember

sun., 22. nóv.

|

Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral

Sr. Kristín og Jón eru með góða gesti í dómkirkjunni okkar. Sigríður Schram framkvæmdastjóri Kristniboðssambands Íslands flytur hugleiðingu og Þórhallur Heimisson kynnir bók sína Stutt biblía fyrir þig að lokinni messu.

Messa og fræðsla 22. nóvember
Messa og fræðsla 22. nóvember

Tími og staðsetning

22. nóv. 2026, 10:00 – 12:00

Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Bláskógabyggð, Ísland

Um viðburðinn

Sunnudaginn 22. nóvember verður mikið umleikis í dómkirkjunni okkar. Í messunni kl. 11 þjónar sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og Sigríður Schram framkvæmdastjóri Kristniboðssambands Íslands flytur hugleiðingu og minnir á mikilvægi kristniboðsins. Jón Bjarnason dómorganisti verður við hljóðfærin og leiðir safnaðarsöng. 

Barnaborðið er ávallt á sínum stað og svo er molasopi á eftir. 

 

Strax eftir messu verður upplestur og kynning á bók sr. Þórhalls Heimissonar Stutt Biblía fyrir þig og við fáum að eiga samtal við höfundinn. Stutt Biblía fyrir þig er aðgengilegt rit fyrir okkur öll sem viljum fræðast um sögu, þróun og samsetningu Biblíunnar og texta hennar. Spennandi og stórbrotin saga. Ekki missa af þessu! 



Deila viðburði

bottom of page