Kaffibrúsamessa í minningu Þorláks helga í Skálholtsdómkirkju 22. desember kl 11.00
sun., 22. des.
|Selfoss
Sunnudaginn 22. desember kl 11.00 verður messa í Skálholtsdómkirkju. Hátíðleg og frumleg stund í umsjón sóknarprests, vígslubiskups og dómorganista á fjórða sunnudegi í aðventu. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari og Jón Bjarnason leikur á orgel.


Tími og staðsetning
22. des. 2024, 11:00 – 11:05
Selfoss, Skálholt, Ísland
Um viðburðinn
Sunnudaginn 22. desemberkl 11.00 verður messa í Skálholtsdómkirkju. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari og Jón Bjarnason organisti leikur á orgel.
Hátíðleg og frumleg stund í umsjón sóknarprests, vígslubiskups og dómorganista á fjórða sunnudegi í aðventu, þar sem minning Þorláks helga, verndardýrlings Íslands, er heiðruð í aðdraganda jólanna.
Þorlákur var biskup í Skálholti árin 1178 - 1193 og barðist mjög fyrir málstað kirkjunnar og góðu mannlífi. Formlegur minningardagur Þorláks helga er 23. desember, Þorláksmessa.
Við hefjum stundina í dómkirkjunni og færum okkur svo út í Þorláksbúð. Við mætum með heita drykki á kaffibrúsum svo við getum hresst okkur eftir messu
Verið öll hjartanlega velkomin í Skálholtsdómkirkju.



