Græn fjölskylduguðsþjónusta í Skálholtsdómkirkju kl 11
sun., 05. okt.
|Skálholtsdómkirkja
Á sunnudaginn verður Græn fjölskylduguðsþjónusta í Skálholtsdómkirkju kl 11. Þar íhugum við sérstaklega hvað boðskapur heilags Frans frá Assisi sýnir okkur um kærleika Guðs til allrar sköpunarinnar. Fermingarbörnin aðstoða og bjóða upp á messukaffi í Gestastofu á eftir.


Tími og staðsetning
05. okt. 2025, 11:00 – 12:00
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Ísland
Um viðburðinn
Á sunnudaginn verður Græn fjölskylduguðsþjónusta í Skálholtsdómkirkju kl 11. Þar íhugum við sérstaklega hvað boðskapur heilags Frans frá Assisi sýnir okkur um kærleika Guðs til allrar sköpunarinnar.
Þau sem vilja mega líka koma með mjúku bangsana eða tuskudýrin sín sem gefa okkur hlýju og öryggi. Og þar sem grænn er litur dagsins hvetjum við alla til að koma í einhverju grænu.
Fermingarbörnin aðstoða og bjóða upp á messukaffi í Gestastofu á eftir. Sr. Kristín Þórunn, Bergþóra djákni og Jón organisti þjóna. Innilega velkomin!



