top of page

Fuglaganga um Skálholtstungu með Tómasi fuglafræðingi

lau., 09. maí

|

Skálholt

Tómas Grétar Gunnarsson fuglafræðingur leiðir göngu um Skálholtstungu. Svæðið býr yfir einni stærstu óröskuðu mýri á Suðurlandi og ríkulegu fuglalífi. Tómas fræðir um líffræðilega fjölbreytni svæðisins og mikilvægi þess fyrir fuglalíf og menningarminjar í landslaginu. Komið með nesti!

Fuglaganga um Skálholtstungu með Tómasi fuglafræðingi
Fuglaganga um Skálholtstungu með Tómasi fuglafræðingi

Tími og staðsetning

09. maí 2026, 09:00 – 13:00

Skálholt, Skálholt, 806, Ísland

Um viðburðinn

Tómas Grétar Gunnarsson fuglafræðingur leiðir göngu um Skálholtstungu þar sem hann fræðir gesti um fuglalíf staðarins.

Farið verður í göngu um Skálholtstungu, tungu milli Hvítár og Brúarár þar sem árnar mætast. Svæðið býr yfir einni stærstu óröskuðu mýri á Suðurlandi og ríkulegu fuglalífi. Tómas fræðir um líffræðilega fjölbreytni svæðisins, mikilvægi þess fyrir fuglalíf og menningarminjar í landslaginu.


Mæting: 9. maí kl. 09:00 við Skálholtsbúðir

Ganga um 6 km - á jafnsléttu að mestu.


Leiðsögumaður: Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi


Mikilvægt er að klæðast eftir veðri og gott að koma með nesti.


Deila viðburði

bottom of page