FRESTAÐ FRAM Á HAUST! "Að öllu tilliti merkiskona" - Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú
mið., 29. maí
|Skálholtsdómkirkja
VIÐBURÐURINN FRESTAST ÞVÍ MIÐUR FRAM Á HAUST VEGNA ÓVIÐRÁÐANLEGRA ÁSTÆÐNA. NÝ DAGSETNING VERÐUR KYNNT Í SUMARLOK. Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands fræðir gesti um Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú sem bjó í Skálholti á 18. öld.


Tími og staðsetning
29. maí 2024, 18:00 – 19:30
Skálholtsdómkirkja, Skálholt,
Um viðburðinn
VIÐBURÐURINN FRESTAST ÞVÍ MIÐUR FRAM Á HAUST VEGNA ÓVIÐRÁÐANLEGRA ÁSTÆÐNA.
NÝ DAGSETNING VERÐUR KYNNT Í SUMARLOK.
„Í öllu tilliti merkiskona“: Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú
Þegar Valgerður Jónsdóttir (1771–1856) biskupsfrú var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Óhætt er að taka undir það, enda var lífshlaup hennar ólíkt flestra annarra kvenna. Þegar Valgerður var 18 ára giftist hún Hannesi Finnssyni biskupi í Skálholti sem þá var fimmtugur. Hún varð ekkja aðeins 25 ára gömul og stóð ein fyrir búi í Skálholti í tíu ár. Þá giftist hún seinni eiginmanni sínum, Steingrími Jónssyni sem síðar varð biskup yfir Íslandi. Valgerður var yfirstéttarkona, af ríkum ættum, vel menntuð og gáfuð. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. En hún var líka dóttir, eiginkona, móðir og amma. Í erindinu verður leitast við að draga upp mynd…