Fermingarmessa í Skálholtsdómkirkju
sun., 24. maí
|Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral
Í Skálholtsdómkirkju fermast 10 börn í hátíðarguðsþjónustu kl. 14 á hvítasunnudag. Þar þjóna sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur og Bergþóra Ragnarsdóttir djákni. Hinn frábæri Skálholtskór syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Hátíðartón Bjarna Þorsteinssonar verður sungið.


Tími og staðsetning
24. maí 2026, 14:00 – 15:00
Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Ísland
Um viðburðinn
Hvítasunnan er ein af stórhátíðum kirkjunnar. Í Skálholtsprestakalli er löng hefð fyrir að fermingarbörn vetrarins játist Jesú Kristi sem leiðtoga lífs síns í messu safnaðarins.
Í Skálholtsdómkirkju fermast 10 börn í hátíðarguðsþjónustu kl. 14 á hvítasunnudag. Þar þjóna sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur og Bergþóra Ragnarsdóttir djákni. Hinn frábæri Skálholtskór syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Hátíðartón Bjarna Þorsteinssonar, sem er ómissandi á öllum stórhátíðum verður sungið.
Gleðilega hvítasunnuhátíð!
