Allra heilagra messa
sun., 01. nóv.
|Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral
Allra heilagra messa með sr. Kristínu Þórunni og Jóni og guðfræðinemum. Kveikt verður á kertum í minningu látinna.


Tími og staðsetning
01. nóv. 2026, 11:00 – 12:00
Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Bláskógabyggð, Ísland
Um viðburðinn
Sunnudaginn 1. nóvember verður fjölbreytt helgihald í Skálholtsprestakalli, á Allra heilagra messu. Í Skálholtsdómkirkju er messa kl. 11 þar sem sóknarpresturinn, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, prédikar og þjónar fyrir altari, Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfærin og leiðir safnaðarsöng. Guðfræðinemar taka þátt í helgihaldinu. Kveikt á kertum í minningu látinna.
Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir messu þar sem við njótum samveru við hvert annað.
Innilega velkomin.

