Að öllu leyti merkiskona - Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú í Skálholti
lau., 26. okt.
|Skálholt
Fræðsluerindi um líf og störf Valgerðar Jónsdóttur biskupfrúar verður haldið í Skálholti laugardaginn 26. október kl 16:00. Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafnsins heldur erindið og leiðir stutta göngu að því loknu. Mæting í fyrirlestrarsal Hótel Skálholts.


Tími og staðsetning
26. okt. 2024, 16:00 – 18:00
Skálholt, Skálholt
Um viðburðinn
Fræðsluerindi um líf og störf Valgerðar Jónsdóttur biskupfrúar verður haldið í Skálholti laugardaginn 26. október kl 16:00. Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Hótel Skálholts, gengið er inn um veitingastaðinn.
Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafnsins heldur erindið og leiðir stutta göngu að því loknu. Farið verður um Skálholtsdómkirkju og niður á safnið þar sem legsteinn sá sem Valgerður lét útbúa fyrir Hannes Finnsson biskup og fyrri eiginkonu hans Þórunni. Gengið verður út undirgöngin og út á fornleifasvæðið sem sýnir húsaskipan á 17 og 18 öld þegar Valgerður var biskupsfrú í Skálholti.
Þegar Valgerður Jónsdóttir (1771–1856) biskupsfrú var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Óhætt er að taka undir það, enda var lífshlaup hennar ólíkt flestra annarra kvenna. Þegar Valgerður var 18 ára giftist hún Hannesi Finnssyni biskupi í Skálholti sem þá var fimmtugur. Hún varð ekkja aðeins 25 ára gömul…



