top of page

Að bjarga bók - Old Icelandic books

lau., 10. maí

|

Skálholt

Eyþór Guðmundsson bókasafnari og grúskari segir frá tilurð Old Icelandic Books, og sýnir bækur sem prentaðar voru í Skálholti á 17. öld. Fyrirlesturinn fer fram kl 15.00 í fyrirlestrarsal Skálholtsskóla. Gengið er inn við veitingastaðinn Hvönn.

Að bjarga bók - Old Icelandic books
Að bjarga bók - Old Icelandic books

Tími og staðsetning

10. maí 2025, 15:00 – 16:00

Skálholt, Skálholt, 806, Ísland

Um viðburðinn

Í Skálholti verður boðið upp á menningarveislu alla laugardaga í maí kl 15:00 með fjölbreyttri fræðslu og göngum þar sem náttúra, saga og menningararfur svæðisins fá að njóta sín.


Laugardaginn 10. maí kl 15:00 verður boðið upp á fræðslufyrirlestur í Skálholtsskóla sem ber heitið: „Að bjarga bók“

 

Eyþór Guðmundsson bókasafnari frá Beitingsstöðum hefur undanfarin 7 ár haldið úti verkefninu Old Icelandic books sem hefur það markmið að varðveita þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókmenntum.

Hann á viðamikið bókasafn fágætra bóka, sem inniheldur bækur sem prentaðar voru fyrr á öldum en elsta eintakið er biblía á latínu sem var í eigu Dr Péturs Péturssonar biskups á árinum 1866 – 1889. Sú biblía var prentuð árið 1578 og er því eldri en Guðbrandsbiblía.  Einnig á hann handritabrot sem eru talin vera um 600 ára.

 


Deila viðburði

bottom of page