top of page

Leiðsögn um Skálholt 

Hægt er að panta staðarleiðsögn fyrir hópa um Skálholtsdómkirkju, minjasafnið, göngin, fornleifasvæði og þekkt kennileiti.

​

Gangan tekur um 30 til 50 mínútur eftir aftali en gestir verða leiddir um kirkjuna þar sem kirkjumunir eru skoðaðir, steindir gluggar Gerðar Helgdóttur og altaristafla Nínu Tryggvadóttur. Farið er á safnið í kjallara kirkjunnar þar sem steinkista Páls Jónssonar biskups er en hún er frá árinu 1211. Farið er út undirgöngin og út á minjasvæðið, inn í Þorláksbúð en gangan endar við Jurtagarðinn upp við Hótel (Skálholtsskóla).

​

Gjaldið er hóflegt eða 1500 kr. á mann. Ókeypis er fyrir yngri en 12 ára. Gjaldið rennur óskipt til staðarins. 

​

Veitingahúsið Hvönn er í Skálholti og með samnefnda heimasíðu með upplýsingum um opnun og þjónustu. Tilvalið er að nýta sér tilboð þar í tengslum við leiðsagnir. Einnig má benda á heimasíðu Hótel Skálholts.

​

Hægt er að panta leiðsögn með því að senda tölvupóst á skalholt@skalholt.is 

Söguganga_Virkishóll_2020.jpg
bottom of page