top of page
Tónlist (7).JPG

Skálholtskórinn

Skálholt Prestacall består af   8 sogne med 12 kirker. I præstedømmet bor en stor og mangfoldig gruppe mennesker, som deltager i menighedens arbejde.

,

Gæsteværelset (indvielsesbiskoppens tidligere embedsbolig) er hjemsted for menighedens arbejde, hvor man kan mødes og hyggesnakkes over en kop kaffe.

Saga kórsins

Skálholtskórinn var stofnaður fyrir vígslu nýrrar Skálholtsdómkirkju árið 1963 af dr. Róbert Abraham Ottóssyni, söngmálastjóra þjóðkirkjunnar. Meðlimir kórsins eru áhugafólk úr nágrenni Skálholts, en í uppsveitum Árnessýslu hefur löngum verið rík sönghefð og hefur kórinn fengið lof fyrir fallegan og metnaðarfullan söng.

​Skálholtskórinn hefur verið svo lánsamur að hafa góða stjórnendur frá upphafi, fyrst dr. Róbert Abraham Ottósson, síðar Glúm Gylfason.  Hilmar Örn Agnarsson var dómorganista við Skálholtsdómkirkju frá 1991 til loka 2008. Hann blés nýju lífi í kórsöng í Skálholti og náði ágætum árangri með kórinn. Núverandi dómorganisti er Jón Bjarnason. Kom hann til starfa árið í maí 2009.

Auk tónlistarflutnings við helgiathafnir í Skálholtskirkju hefur Skálholtskórinn víða komið fram í seinni tíð, jafnt erlendis sem á Íslandi, og hann á að baki fjölbreyttan flutning verka af veraldlegum og andlegum toga. Má þar m.a. nefna árlega aðventutónleika í Skálholtskirkju með þekktum íslenskum tónlistarmönnum og hljóðfæraleikurum, flutning á Skálholtskantötu Páls Ísólfssonar árið 1993 í Skálholti, Gloriu Vivaldis árið 1999 í Skálholti og Fossvogskirkju, kirkjukantötunnar „Víst mun vorið koma“ eftir Sigvald Tveid árið 2001 í Skálholti, Þorlákshöfn og Langholtskirkju og þátttöku í Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar árið 2006 í Skálholti, Keflavík og Garfarvogi. Árið 2003 kom kórinn fram á listahátíð í Piran í Slóveníu og auk þess hefur hann komið fram á tónleikum í Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu.Þetta er annar geisladiskur kórsins með trúarlegri tónlist, en árið 2005 kom út diskurinn „Skálholtskórinn á tónleikum“ með upptökum af Gloriu Vivaldis og fleiri verkum. Á þessum diski, sem tekinn var upp í Skálholtskirkju, flytur kórinn kirkjulega tónlist, með og án undirleiks. Fjórir sálmanna eru eftir dr. Róbert A. Ottósson, eða í útsetningu hans, í minningu hans.

bottom of page