Seitentitel
Dies ist ein Absatz. Klicken Sie auf „Text bearbeiten“ oder doppelklicken Sie auf das Textfeld, um mit der Bearbeitung des Inhalts zu beginnen, und stellen Sie sicher, dass Sie alle relevanten Details oder Informationen hinzufügen, die Sie mit Ihren Besuchern teilen möchten.
Abschnittsüberschrift
Gluggar Gerðar Helgadóttur
Steindir glergluggar Skálholtskirkju eru eftir listakonuna Gerði Helgadóttur (1928-1975) vísa m.a. til sögu biskupsstólsins og píslarsögu Krists. Þau eru einhver fegurstu og dýrmætustu listaverk sem er að vinna í íslenskri kirkju.
Altaristafla Nínu Tryggvadóttur
Altaristaflan í Skálholtskirkju er eftir listakonuna Nínu Tryggvadóttur (1913-1968). Hugmynd nínu var að altaristaflan ætti að tákna hálf loftkennda myndKrists birtast sem einskonar anda í íslensku Sumarlandslagi. Listaverkið er úr mósaík og var sett upp árið 1966. Verkið er eitthvert fegursta og dýrmætasta listaverk sem er að finna í íslenskri kirkju.
Gripir í Skálholtskirkju
Inni í kirkjunni eru gripir, frá 17. öld. Þar eru altari, stjakar og predikunarstóll úr síðustu dómkirkjunni, altari Brynjólfs biskups Sveinssonar og predikunarstóll meistara Jóns Vídalíns.
Arkitektúr
Húsameistari ríkisins Hörður Bjarnason er arkitekt Skálholtskirkju sem er einstaklega glæsileg í einfaldleik sínum. Í útfærslu sinni á Skálholtskirkju hafði Hörður hliðsjón af Brynjólfskirkju, krosslögð með þverskipi og hliðarskipum.
Safnið í kjallara kirkjunnar
Safnið í kjallara kirkjunnar geymir ýmsa muni sem fundust við fornleifauppgröftinn 1954 - 58. Þar á meðal steinkistu Páls Jónssonar og undirgöng milli kirkjunnar og miðaldaþorpsins.
Þorláksbúð
Þorláksbúð er talin reist eftir kirkjubruna í biskups tíð Ögmundar Páls sonar. Ögmundur var sem kunnugt er síðasti kaþólski biskupinn og var í hans tíð messað í húsi þessu meðan ný kirkja var í byggingu.
Framkvæmdir á kirkjunni
Skálholtskirkja hefur hlotið gagngera yfirhalningu árin 2022 og 2023. Farið var yfir allt ytra og innra byrði kirkjunnar á þessum tíma.
Kirkjuklukkurnar
Í turni Skálholtskirkju eru fimm kirkjuklukkur sem gefnar voru til kirkjunnar á byggingartímanum, ein frá Danmörku, tvær frá Svíþjóð, ein frá Finnlandi og ein frá Noregi.
Bókasafnið í kirkjuturninum
Í turni Skálholtskirkju er geymt merkilegt og gott safn um elsta prent á Íslandi. Í safninu er að finna eintök flestra þeirra bóka sem prentaðar voru á Íslandi frá lokum 16. aldar til upphafs 19. aldar.
Gjafir til kirkjunnar
Kirkjan hefur fengið margar verðmætar gjafir frá Norðurlöndunum. Kirkjuklukkur, orgel, steindir glergluggar og skírnarfontur eru dæmi um gjafir til kirkjunnar.