Vortónleikar Karlakórs Hreppamanna
Sat, Apr 18
|Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral
Karlakór Hreppamanna býður á vortónleika í Skálholtsdómkirkju 18. apríl nk 20:00. Yfirskrift tónleikanna er "Lyftum andanum inn í vorið". Aðgangseyrir 5000 kr. Miðasala við innganginn.


Time & Location
Apr 18, 2026, 8:00 PM – 9:30 PM
Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Ísland
About the event
Karlakór Hreppamanna býður á vortónleika í Skálholtsdómkirkju 18. apríl nk 20:00.
Yfirskrift tónleikanna þetta árið er „Lyftum andanum inn í vorið“. Efnisskrá kórsins er af léttara taginu og lagavalið hefur það að markmiði, líkt og ávallt, að næra andann og njóta. Sungin eru lög um vorið og einnig lög sem goðsögnin Ragnar Bjarnason hefur gert fleyg og snert hjörtu okkar Íslendinga í áratugi.
Nokkrir félagar úr kórnum munu stíga fram og skreyta tónleikana með samsöng.
Þá njótum við að sjálfsögðu stuðnings og leiðsagnar okkar eðalmanna, Atla Guðlaugssonar, stjórnanda kórsins og Sigurðar Helga, píanóleikara. Auk þeirra koma fram með kórnum Mattías Stefánsson, „altmuligmaður“, sem spilar á ýmis hljóðfæri og nýr félagi í kórnum, Karl Hallgrímsson sem leikur á mandólin og rafbassa. Eins og undanfarin ár syngur okkar eini sanni Bjarni Atlason einsöng í nokkrum lögum. Það er einlæg von okkar kórfélaga að þið njótið tónleikanna.
Aðgangseyrir 5000 kr. Miðasala við innganginn.
Veitingastaðurinn Hvönn í…
