top of page

Útimessa við Þorlákssæti og setning Skálholtshátíðar

Sat, Jul 19

|

Skálholtsdómkirkja

Laugardaginn 19. júlí er útimessa við Þorlákssæti þar sem hátíðin er sett. Safnast er saman á kirkjutröppunum fyrir kl. 9 og gengið í skrúðfylkingu að Þorlákssæti sem er litlu austar en Minnisvarðinn um Jón biskup Arason.

Útimessa við Þorlákssæti og setning Skálholtshátíðar
Útimessa við Þorlákssæti og setning Skálholtshátíðar

Time & Location

Jul 19, 2025, 9:00 AM – 9:50 AM

Skálholtsdómkirkja, Skálholt, Bláskógabyggð, Ísland

About the event

Útimessa við Þorlákssæti þar sem hátíðin er sett. Gengið er að Þorlákssæti í skrúðfylkingu úr forkirkjunni með sálmabækur og önnur instrument. 


Útimessan við Þorlákssæti hefur verið á dagskrá hátíðarinnar um árabil og það hefur verið merkilegt að upplifa það hversu oft hefur verið hægt að messa utandyra á þessum árum.


Gangan tekur um 5-7 mínútur og eru að sjálfsögðu allir velkomnir í þennan yndæla viðburð sem messan er. Hátíðleg stund á fallegum stað. Forsöngvari og hringjari er Jón Bjarnason, organisti, en sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup Skálholts, þjónar þarna við fótskör Þorláks helga Þórhallssonar á klöppinni sem kennd er við hann. Samfélagið um Guðs borð fær alveg nýja merkingu sem samfélagið um síðustu kvöldmáltíðina í móum og kletti.


Share this event

bottom of page