Undir sömu stjörnu
Sun, Nov 08
|Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral
Óperan í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, flytja sögu óperunnar frá Ítalíu til Íslands.


Time & Location
Nov 08, 2026, 4:00 PM – 6:00 PM
Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Bláskógabyggð, Ísland
About the event
Óperan, sem stofnuð var með lögum árið 2025 sem hluti af Þjóðleikhúsinu, hefur starfsemi sína með söngdagskrá sem fer um landið áður en hún kemur til Reykjavíkur. Titillinn vísar til þess að sama ár og Jónas Hallgrímsson orti Ástarstjörnu yfir Hraundranga samdi Richard Wagner aríu til kvöldstjörnunnar. Saga óperunnar er rakin frá ítölskum hirðum til Íslands. Fjórir nýráðnir söngvarar Óperunnar syngja, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Kristján Jóhannesson, og leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason leiða áhorfendur í gegnum söguna. Ólafur Egill Egilsson skrifaði handritið og leikstýrir, og dagskráin tekur um tvær klukkustundir með einu hléi. Í Skálholtsdómkirkju, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, koma fram hljómsveitin, Kammerkór Norðurlands, Skálholtskórinn og Kammerkór Rangæinga undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, og gestasöngvari er Gunnlaugur Bjarnason.
Flytjendur
Kristín Einarsdóttir Mäntylä sópran
Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran
Gunnar Björn Jónsson tenór
Kristján Jóhannesson barítón

