Tónleikar Kórs Neskirkju
Sat, Jun 06
|Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral
Kór Neskirkju heldur tónleika í Skálholti, laugardaginn 6. júní kl. 16. Á dagskrá eru bæði íslensk og erlend verk af andlegum og veraldlegum toga. Einnig verða frumflutt þrjú ný verk eftir kórstjórann, Steingrím Þórhallsson. Aðgangur ókeypis og öll velkomin.


Time & Location
Jun 06, 2026, 4:00 PM – 5:00 PM
Skálholtsdómkirkja - Skálholt Cathedral, Skálholt, Ísland
About the event
Kór Neskirkju heldur tónleika í Skálholti, laugardaginn 6. júní kl. 16.
Á dagskrá eru bæði íslensk og erlend verk af andlegum og veraldlegum toga. Einnig verða frumflutt þrjú ný verk eftir kórstjórann, Steingrím Þórhallsson.
Kór Neskirkju er safnaðarkór og eru starfandi kórfélagar alla jafna um 40. Kórinn tekur virkan þátt í öllu helgihaldi í Neskirkju, syngur við messur og flytur margs konar verk á stórhátíðum og öðrum viðburðum á vegum kirkjunnar. Kórinn hefur flutt margar af helstu perlum kirkjutónlistar og haldið tónleika með ýmsum þjóðþekktum tónlistarmönnum.
Steingrímur Þórhallsson, organisti og tónskáld, hefur stjórnað Kór Neskirkju frá árinu 2002 jafnframt því að starfa með ýmsum tónlistarhópum á Íslandi. Undanfarin ár hefur Steingrímur snúið sér í vaxandi mæli að tónsmíðum. Hann hefur samið verk fyrir kóra, einleikshljóðfæri og kammerhópa. Samhliða klassískum tónsmíðum semur hann tónlist fyrir sjónvarp. Kór Neskirkju hefur frumflutt nokkur kórverk eftir Steingrím.
Dagskrá:
Requiem. Íslensk þjóðvísa og Jónas Hallgrímsson…
