Sunnudagsmessa þriðja sunnudag í aðventu kl 11.00
Sun, Dec 14
|Skálholtsdómkirkja
Þriðji sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á orgel og flygil og leiðir almennan safnaðarsöng.


Time & Location
Dec 14, 2025, 11:00 AM – 12:00 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806 Selfoss, Ísland
About the event
Þriðji sunnudagur í aðventu er frá fornu fari kallaður “Gaudete” sem útleggst hreinlega “verið glöð!” (sbr. Filippíbréfið 4.4). Enda styttist nú í komu jólanna og hins himneska ljóss sem lýsir heiminum og því ber að fagna. Bleiki liturinn á heima á þessum sunnudegi og margir hafa t.d. eitt bleikt kerti á aðventukransinum sem er tendrað þriðja sunnudag í aðventu.
Í Skálholti verður Gaudete messa kl. 11 þar sem sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar og prédikar. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á Steinway flygilinn og orgelið, og leiðir safnaðarsöng.
Innilega velkomin!



