Sunnudagsmessa í anda Taizé
Sun, Jan 18
|Skálholtsdómkirkja
Messa kl. 11 sunnudaginn 18. janúar. Við syngjum einfalda og hlýja sálma frá Taizé-samfélaginu á ólíkum tungumálum. Barnaborðið er alltaf á sínum stað. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar og leiðir söng. Meguru Yoshikawa er meðhjálpari. Innilega velkomin.


Time & Location
Jan 18, 2026, 11:00 AM – 12:00 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Ísland
About the event
Messa kl. 11 sunnudaginn 18. janúar. Við syngjum einfalda og hlýja sálma frá Taizé-samfélaginu á ólíkum tungumálum.
Í þorpinu Taizé í Frakklandi hefur frá lokum síðari heimstyrjaldar verið starfrækt samkirkjulegt klaustur til að efla frið og samstöðu á milli fólks. Hugsjónin er að hjálpa okkur að ná sáttum, sættast við okkur sjálf, annað fólk, lífið og Guð og stuðla þannig að friði í heiminum. Eðli Taizé söngvanna er endurtekningin,sem fær okkur til að fara á dýptina, setjast að í kyrrð hjartans.
Barnaborðið er alltaf á sínum stað. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar og leiðir söng. Meguru Yoshikawa er meðhjálpari. Innilega velkomin.



