Söguganga á Menningarminjadögum
Sat, Sep 20
|Skálholtsdómkirkja
Söguganga í Skálholti með Skúla Sæland sagnfræðingi Laugardagur 20. september kl. 14:00 Komdu í sögugöngu um einn merkasta menningarstað Íslands! Skúli Sæland, sagnfræðingur, leiðir gesti um Skálholtsstað og varpar ljósi á sögu staðarins sem var höfuðstaður þjóðarinnar í meira en sjö aldir.


Time & Location
Sep 20, 2025, 2:00 PM – 3:30 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Ísland
About the event
Söguganga í Skálholti með Skúla Sæland, sagnfræðingi
Laugardagur 20. september kl. 14:00
Komdu í sögugöngu um einn merkasta menningarstað Íslands! Skúli Sæland, sagnfræðingur, leiðir gesti um Skálholtsstað og varpar ljósi á sögu staðarins sem var andlegur, trúarlegur og veraldlegur höfuðstaður þjóðarinnar í meira en sjö aldir.
Á göngunni verður gengið inn í Skálholtsdómkirkju og rifjuð upp saga hennar og hinna áhrifamiklu biskupa sem þar sátu. Í kjallara kirkjunnar er safn þar sem fornir gripir og steinkista Páls Jónssonar frá 1211 verða skoðuð, ásamt legsteinum og minjum sem komu í ljós við uppgröftinn á fimmta áratug síðustu aldar. Því næst verður gengið í gegnum undirgöngin sem tengja kirkjuna við hið víðfeðma fornleifasvæði. Þar verður staldrað við og sagt frá merkilegum uppgreftri sem varpaði nýju ljósi á daglegt líf í Skálholti.
Gestir fá einnig að kynnast Þorláksbúð, sem stendur á upprunalegum grunni frá 16. öld, og saga hennar verður rakin í…



