Ókeypis leiðsögn föstudaginn 20.september
Fri, Sep 20
|Skálholtsdómkirkja
Ókeypis leiðsögn um Skálholtsstað alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga í september og október


Time & Location
Sep 20, 2024, 3:00 PM – 3:30 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, Ísland
About the event
Ókeypis leiðsögn í Skálholti!
Alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga í september og október bjóðum við upp á ókeypis leiðsögn um Skálholtsdómkirkju og næsta nágrenni. Leiðsögnin hefst kl 15:00 alla dagana.
Gengið verður um kirkjuna þar sem kirkjuvörður fer yfir sögu staðarins og listaverk og gripir inni í kirkjunni eru skoðuð. Þá er farið niður á safnið þar sem steinkista Páls Jónssonar frá 1211 og undirgöng frá 11.öld eru skoðuð. Fornleifasvæðið er skoðað en það hefur verið endurbætt í sumar. Leiðsögnin endar inn í Þorláksbúð. Leiðsögnin tekur um 30-40 mín og eru öll velkomin og aðgangur ókeypis.
Mæting í kirkjuna föstudaga, laugardaga og sunnudaga kl 15:00!
