Messa í Miðdalskirkju á gamlársdag, 31. desember kl 11.00
Sat, Dec 28
|Laugarvatn
Messa í Miðdalskirkju, þriðjudaginn 31.desember, gamlársdag kl. 11.00. Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir leiðir samkomuna, með henni Bergþóra Ragnarsdóttir djákni og Jón Bjarnason sér um undirleik í almennum safnaðarsöng.


Time & Location
Dec 28, 2024, 1:02 PM – 1:07 PM
Laugarvatn, 806 Laugarvatn, Ísland
About the event
Eins og öllum hér er kunnugt þá urðum við því miður að fresta messunni í Miðdalskirkju á jóladag vegna veðurs. Nú hafa sóknarnefnd ásamt presti og organista komið sér saman um að gera aðra tilraun og stefnum við nú á að hafa messu í Miðdalskirkju, þriðjudaginn 31.12, sem sagt á gamlársdag kl. 11.00.
Spáin er góð, heiðskírt, en kalt og smá gola. Þetta verður svona jóla, áramóta hátíðamessa og vonumst við bara til að sjá ykkur þá, allir velkomnir.
Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir leiðir samkomuna, með henni Bergþóra Ragnarsdóttir djákni og Jón Bjarnason sér um undirleik í almennum safnaðarsöng.
Sóknarnefnd Miðdalssóknar.



