Karlakór frá Grænlandi ásamt Smaladrengjunum í Skálholti
Thu, Apr 24
|Skálholtsdómkirkja
Karlakórinn Saqqaarsik og Smaladrengirnir bjóða upp á tónleika í Skálholtsdómkirkju. Karlakórinn Saqqaarsik frá Qaqortoq á Grænlandi er í vinaheimsókn á landinu en kórinn samanstendur af kennurum, skrifstofumönnum, veiðimönnum, verkamönnum og trukkabílstjórum. Aðgangur ókeypis.


Time & Location
Apr 24, 2025, 2:00 PM – 3:00 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt
About the event
Tónleikar Karlakórsins Saqqaarsik og Smaladrengjanna
Karlakórinn Saqqaarsik frá Qaqortoq á Grænlandi er væntanlegur í vinaheimsókn dagana 22.-24. apríl nk.Kórinn fagnar um þessar mundir 20 ára starfsafmæli og samanstendur af kennTónleikar Karlakórsins Saqqaarsik og Smaladrengjanna
Karlakórinn Saqqaarsik frá Qaqortoq á Grænlandi er væntanlegur í vinaheimsókn dagana 22.-24. apríl nk.Kórinn fagnar um þessar mundir 20 ára starfsafmæli og samanstendur af kennurum, skrifstofumönnum, veiðimönnum, verkamönnum og trukkabílstjórum.
Stjórnandi kórsins er Angerdla Kielsen-Olsen, sem er þekktur trúbador á Grænlandi.
Þeir syngja tónlist úr mörgum áttum, allt frá þjóðlögum, kirkjutónlist og dægurlögum m.a. eftir stjórnandann sem útsetur flest lögin sem þeir syngja. Hver veit nema við heyrum líka í grænlenskri galdratrommu hjá þeim!Þeir eru rómaðir fyrir glaðværð og skemmtilegheit á tónleikum þar sem þeir skýra frá textum og sögum frá Grænlandi.
