Kaffibrúasa messa fjórða sunnudag í aðventu - minningarmessa Þorláks helga
Sun, Dec 21
|Skálholtsdómkirkja
21. desember – Fjórði sunnudagur í aðventu - Kaffibrúsa messa í Skálholtsdómkirkju. Minningarmessa Þorláks helga kl. 11. Sr. Gunnbjörg Óladóttir héraðsprestur þjónar og prédikar. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á orgel og flygil og leiðir safnaðarsöng. Heitir drykkir í Þorláksbúð á eftir.


Time & Location
Dec 21, 2025, 11:00 AM – 12:00 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806 Selfoss, Ísland
About the event
21. desember – Fjórði sunnudagur í aðventu
Skálholtsdómkirkja: Minningarmessa Þorláks helga kl. 11. Sr. Gunnbjörg Óladóttir héraðsprestur þjónar og prédikar. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á orgel og flygil og leiðir safnaðarsöng. Við hefjum stundina í dómkirkjunni og færum okkur svo út í Þorláksbúð. Við mætum með heita drykki á kaffibrúsum svo við getum hresst okkur eftir messu
Hátíðleg og frumleg stund, þar sem minning Þorláks helga, verndardýrlings Íslands, er heiðruð í aðdraganda jólanna.
Þorlákur var biskup í Skálholti árin 1178 - 1193 og barðist mjög fyrir málstað kirkjunnar og góðu mannlífi. Formlegur minningardagur Þorláks helga er 23. desember, Þorláksmessa.
Verið öll hjartanlega velkomin í Skálholtsdómkirkju.
Hér má sjá nokkrar myndir af minningarmessu Þorláks helga í fyrra:
