top of page

Innsetningarmessa sunnudaginn 22. september

Sun, Sep 22

|

Skálholtsdómkirkja

Sunnudaginn 22. september kl. 11 verður innsetningarmessa í Skálholtsdómkirkju

Innsetningarmessa sunnudaginn 22. september
Innsetningarmessa sunnudaginn 22. september

Time & Location

Sep 22, 2024, 11:00 AM – 12:00 PM

Skálholtsdómkirkja, Skálholt, Ísland

About the event

Innsetningarmessa í Skálholti

Sunnudaginn 22. september kl. 11 verður innsetningarmessa í Skálholtskirkju. Sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir setur Bergþóru Ragnarsdóttur í embætti djákna og sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur í embætti sóknarprests í Skálholtsprestakalli. Herdís Friðriksdóttir og Vigdís Fjóla Þórarinsdóttir lesa ritningarlestra og meðhjálpari er Perla María Karlsdóttir. Sr. Kristján Björnsson lýsir blessun, Jón Bjarnason dómorganisti leikur á orgelið og stjórnar Skálholtskórnum. Aðstaða verður fyrir börnin í kirkjuskipinu til að lita og leika sér. Eftir messu verður kaffisopi í Gestastofu. Öll eru hjartanlega velkomnin!

Kristín Þórunn Tómasdóttir - Nýr sóknarprestur Skálholtsprestakalls

Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir er fædd árið 1970 í Neskaupsstað, þar sem foreldrar hennar, sr. Tómas Sveinsson og Unnur Anna Halldórsdóttir djákni, störfuðu. Hún er elst af fimm börnum. Kristín Þórunn hefur menntað sig í guðfræði- og trúarbragðafræðum bæði á Íslandi, í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Hún hefur starfað sem prestur frá árinu 1998 og hefur víðtæka reynslu úr dreifbýli og…

Share this event

bottom of page