Helgistund við sólarupprás austan við Skálholtsdómkirkju á páskadagsmorgun kl. 5.54
Sun, Apr 20
|Skálholtsdómkirkja
Páskamorgun 20. apríl. Stutt helgistund við sólarupprás austan við kórgaflinn ef veður leyfir. Safnast er saman inni í hákór kirkjunnar og svo setjumst við út á bekk á grunni miðaldakirkjunnar þar sem kór og altari hennar var. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup þjónar. Altarisganga við háaltarið.


Time & Location
Apr 20, 2025, 5:50 AM – 6:20 AM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt, Ísland
About the event
Helgistund úti við kórgafl dómkirkjunnar við sólarupprás. Sólarupprás er áætluð um 5.54 í Skálholti en þá brjótast geislar hennar yfir Hreppafjöllin. Sr. Kristján vígslubiskup þjónar. Eftir stundina úti og upplifun páskasólar færum við okkur inn um skrúðhúsið að háaltarinu og göngum til altaris.
"Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni." Og við gerum það líka og ekki síst í minningu þeirra sem fyrstar urðu vitni að upprisu Jesú Krists frá dauðum. Það voru þær María Magdalena og María móðir Jakobs og Salóme. Og þær heyrðu þessi undarlegu gleðitíðindi úr gröfinni: "Hann er upprisinn, hann er ekki hér."
