top of page

Hátíðardagskrá á Skálholtshátíð kl 16:00

Sun, Jul 20

|

Skálholtsdómkirkja

Hátíðardagskrá hefst kl. 16 í kirkjunni. Hátíðarerindið flytur Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur, og höfundur bókarinnar "Himintungl við heimsins ystu brún" er gerist í byrjun 17. aldar. Skálholtskórinn og tónlistarfólk flytja kórverk undir stjórn Jóns Bjarnasonar, dómorganista. Flutt verða ávörp.

Hátíðardagskrá á Skálholtshátíð kl 16:00
Hátíðardagskrá á Skálholtshátíð kl 16:00

Time & Location

Jul 20, 2025, 4:00 PM – 5:00 PM

Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Ísland

About the event

Hátíðardagskrá hefst kl. 16 í kirkjunni. Hátíðarerindið flytur Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur, og höfundur bókarinnar "Himintungl við heimsins ystu brún" er gerist í byrjun 17. aldar. Stefnt er að vígslu fyrsta Steinway D konsertflygils í kirkjunni en mikil söfnun hefur verið haldin til kaupa á honum. Skálholtskórinn og tónlistarfólk flytja kórverk undir stjórn Jóns Bjarnasonar, dómorganista. Ávörp flytja dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dr. Dirk Lange frá Lútherska heimssambandinu, Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, og biskup Íslands, frú Guðrún Karls Helgudóttir. Í dagskrá þessari verður Bókhlaða Skálholts opnuð formlega í nýju húsnæði Gestastofunnar. Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup stýrir hátíðardagskránni.


Hér má sjá nokkrar myndir af hátíðardagskrá Skálholtshátíðar 2024 sem Páll M Skúlason tók. Þar fluttu Guðni Th Jóhannesson þáverandi forseti Íslands og Lilja Alfreðsdóttir þáverandi Menningarmálaráðherra og Agnes M. Sigurðardóttir þáverandi biskup Íslands ávörp.



Share this event

bottom of page