Bókaflutningur úr turni Skálholtsdómkirkju
Sun, Jun 22
|Skálholt
Sunnudaginn 22. júní kl. 16:30 bjóðum við ykkur að taka þátt í einstöku og skemmtilegu verkefni, að flytja allar bækurnar úr kirkjuturni Skálholtsdómkirkju niður í nýja bókhlöðu Skálholtsstaðar í Gestastofunni. Mæting kl 16.30 í kirkjuna. Flutningurinn tekur um 1 klst. Kaffi og kleikur í lokin.


Time & Location
Jun 22, 2025, 4:30 PM – 5:30 PM
Skálholt, Skálholt, 806, Ísland
About the event
Sunnudaginn 22. júní kl. 16:30 bjóðum við ykkur að taka þátt í einstöku og skemmtilegu verkefni:
Að flytja allar bækurnar úr kirkjuturni Skálholtsdómkirkju niður í nýja bókhlöðu Skálholtsstaðar í Gestastofunni.
Saman myndum við mannlega keðju sem handlangar bókakassa úr turninum, niður stigana, út og yfir í kjallara Gestastofunnar – hús með ríka sögu sem prestssetur, rektorshús, biskupssetur og nú fjölnotahús safnaðarins.
Þetta er sjaldgæft tækifæri til að taka virkan þátt í varðveislu og nýrri sögu staðarins. Verkefnið tekur um klukkustund og í lokin bíða kaffisopi og kleinur á Hvönn.
Við þökkum öllum sem leggja hönd á plóg – þetta verður ánægjuleg samvera þar sem enginn hleypur stigana og við notum hjálpartæki þar sem við getum.
