Jólatónleikar Karlakórs Selfoss mánudag 12. desember kl 20:00
Karlakór Selfoss býður uppá jólatónleika í Skálholtsdómkirkju mánudaginn 12. desember kl 20:00.
Dagskrá tónleikanna er sérstaklega hátíðleg, sungin verða jólalög úr ýmsum áttum í nýjum og eldri útsetningum. Verið velkomin í Skálholtskirkju á aðventunni og komist í jólaskap!
Aðgangur að jólatónleikunum er ókeypis og þið eruð öll velkomin.
Skarphéðinn Þór Hjartarson stjórnandi Karlakórs Selfoss og píanóleikari er Jón Bjarnason.
