Helgihald í Skálholtsprestakalli í dymbilviku og páskahátíðinni
Messur í Skálholtsprestakalli fram að og yfir páskahátíðina.
Í Skálholtspresta kalli verður mikið af fjölbreyttu helgihaldi fram að og yfir páskanna. Ekki verður helgihald í Skálholtsdómkirkju vegna viðgerða fyrr en 7. maí en messað verður í öðrum kirkjum í prestakallinu.

29.mars - verður síðasta föstumessan í Mosfellskirkju.
1.apríl - Fermingarmessa kl.14.00 í Torfastaðakirkju
2.apríl - Pálmasunnudag kl.14.00 verður messað í Búrfellskirkju
6.apríl - skírdag verður messað í Bræðratungukirkju kl.14.00 og í Stóruborgarkirkju kl.18.00.
Messan í Stóruborgarkirkju verðu óhefðbundin að því leiti að búið verður að raða upp borðum og stólum. Við ætlum að halda Pálínu- boð og koma með mat og drykk að borðum en það verður messað við borðið og við brjótum saman brauð og útdeilum altarissakramennti. Í lok messunnar fer fram afskrýðing altaris.
7.apríl - Föstudaginn langa verður píslasögu helgistund í Torfastaða kirkju kl.16.00.
Þá munum við lesa píslarsöguna og síðustu sjö orð Krist á krossinum.
8.apríl- aðfangadagur páska er fermingarmessa í Úthlíðarkirkju.
9.apríl - Páskadagur. Sólarupprásarmessa kl. 6.15 í Þingvallakirkju,
Hátíðarmessa í Menntaskólanum á Laugarvatni kl. 8.00. Boðið verður upp á morgunverð eftir messuna og páskaeggjaleit fyrir börnin.
Hátíðarmessa í Torfastaðakirkju kl.14.00
Hátíðarmessa í Sólheimakirkju kl.14.00
10.apríl - annan dag páska. Messa í Úlfljótsvatnskirkju kl.11.00
Messa í Haukadalskirkju kl.14.00