Neyðarástand vegna mikils vatnsleka í turni kirkjunnar

Það er óhætt að segja að neyðarástand hafi skapast fyrir stuttu þegar mikill vatnsleki varð í turni Skálholtsdómkirkju. Kirkjuráð brást mjög hratt við þessari stöðu og samþykkti í síðustu viku að skipt yrði út þaki og allt ytra byrði kirkjunnar yrði endurnýjað. Verndarsjóður Skálholtsdómkirkju hefur hafið undirbúning að flutningi hins sögufræga og merkilega bókasafns úr turnherbergjunum yfir í Gestastofu sem fyrst og aðstaða sköpuð þar til að safnið fái viðunandi húsnæði. Það verður safn með rannsóknaraðstöðu og sýningu á merkilegustu gripum safnsins, m.a. bókum sem prentaðar voru í Skálholti á seinni hluta 17. aldar.

Þakrennur, sem liggja inní turni biluðu á klukkuloftinu og þar safnaðist upp vaðdjúpt vatn. Úr því lak niður á næstu hæðir turnsins þar sem hið sögufræga og merkilega bókasafn hefur verið geymt í áratugi. Það var Kristján biskup sem kom að þessu og verður að teljast mildi að ekki lak á sjálfar bækurnar. Starfsfólk Skálholts verkaði upp pollana eftir að biskup hafði gert við rennuna til bráðabirgða. Oft hefur verið rætt um þennan flutning en nú verður ekki tafið við það frekar og farið í það af fullri einurð. Undirbúningur er þegar hafinn, bæði til að hægt sé að undirbúa bækurnar og pakka þeim og einnig koma upp varanlegri aðstöðu í Gestastofunni með nýjum skápum og góðri loftræstingu. Sjálfboðaliðar hafa verið í startholum lengi og bíður hópur fólks þess að geta handlangað bækurnar ofan úr turni, eftir lofinu, niður allar tröður og yfir í Gestastofuna. Þegar að því kemur verður öðrum einnig gefinn kostur á að skrá sig sem sjálfboðaliðar í þetta menningarlega mikilvæga verkefni.
Steinflísarnar á þakinu eru úr sér gengnar og þekjan er öll mosagróin. Lengi hefur lekið í turninum og niður í kirkju og hefur legið fyrir ástandsskoðun sem var síðast uppfærð í vetur. Hún hljóðar uppá nær eitt hundrað milljónir króna í heild með þeim lagfæringum sem þegar höfðu verið ákveðnar í sumar. Það eru mjög góðar fréttir að kirkjuráð hefur nú tekið þessa ákvörðun og er stefnan að öllum endurbótum á kirkjunni að utan og innan verði lokði ekki síðar en á 60 ára afmæli dómkirkjunnar 2023. Þakið og vatnsskemmdir eru þó í algjörum forgangi. Rétt er að geta þess að kirkjan er friðuð og verður unnið að öllum endurbótum í fullu samráði við Minjastofnun Íslands.

Meðal annarra viðhaldsverkefna má nefna að múrari kemur um næstu mánaðarmót að endurgera útitröppur kirkjunnar og gengið verður frá endurbótum vegna brunavarna sem unnið hefur verið að undanfarin misseri. Þá er í athugun endurbætt lýsing inní í kirkju og mun Verndarsjóður Skálholtsdómkirkju kosta það verkefni og mun fólk geta lagt þessu verkefni lið með framlögum í sjóðinn. Þá hefur verið rætt um það að þegar þekjan verður rofin á turnþakinu sjálfu væri hagfellt að koma nýrri klukku þar inn í stað þeirrar dönsku klukku sem féll af ramböltunum fyrir nokkrum árum og liggur þar uppi mölbrotin. Önnur verk sem byrjað verður á við kirkjuna er lagfæring á hleðslu undirgangsins og lagfæringar á minjasvæðinu en auk þess verður hlaðinn upp torfgarður á austur- og suðurbrún eldri kirkjugarðsins í samræmi við hleðsluna á norður- og austurhlið og um Virkishólinn, en sú framkvæmt er á vegum kirkjugarðsins með styrk frá Kirkjugarðaráði Íslands.