top of page

Mjólkurframleiðslu í Skálholti hætt á næstu dögum og kýr og nautgripir til sölu

Það verður mikil breyting í Skálholti núna á fardögum að vori því dagana 3.-7. júní verður mjólkurframleiðslu hætt í Skálholti samkvæmt ákvörðun kirkjuráðs Þjóðkirkjunnar. Lýkur þar sögu kúabúskapar í Skálholti sem hefur væntanlega verið stundaður hér síðan á landnámstíð og margir telja órjúfandi hluta af sögu Skálholts. Mjólkurframleiðsla hefur síðustu ár verið stunduð með undanþágum og er básafjósið komið til ára sinna en framleiðslukvóti staðarins hefur ekki verið nema um 80 þús lítrar. Mjólkurkýr, kvígur og kálfar verða til sölu í Skálholti mánudaginn 3. - 7. júní og mun síðasti ábúandinn, Gestur Einarsson, sýna gripina og veita upplýsingar á staðnum og í síma 856 1504. Einnig verða til sölu mjólkurtankur og röramjaltatæki og fleira sem tengist mjólkurframleiðslunni. Skálholtsstaður annast söluna og mun nýta andvirði til uppbyggingar og reksturs á jörðinni. Skálholtsjörðin verður í umsjá Skálholtsstaðar og er stefnt að því að auglýst verði eftir ráðsmanni í sumar en það er liður í ákveðnum skipulagsbreytingum í stjórn og reksti Skálholtsstaðar.

Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page