Lamadýrajól í Skálholti - 8. jólatónleikar Söngfjelagsins

Söngfjelagið kynnir með stolti áttundu jólatónleikana sína í Skálholtsdómkirkju laugardaginn 8. des. kl. 16. Þemað í ár kemur frá Suður-Ameríku og þess vegna kallast tónleikarnir Lamadýrajól. Flutt verða tvö verk eftir argentínska tónskáldið Ariel Ramirez, annars vegar hin þekkta Kreólamessa „Misa Criolla“ og hinsvegar helgisagan um fæðingu Krists „Navidad Nuestra“. Þá verða flutt nokkur vel valin suðuramerísk jólalög. Samkvæmt hefð Söngfjelagsins verður einnig frumflutt nýtt íslenskt jólalag. Það er samið í suður-amerískum anda af Hjörleifi Hjartarsyni kórfélaga sem einnig er annar meðlima tvíeykisins Hundur í óskilum. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson, fv. organisti í Skálholti.

Suður-ameríska hljómsveitin INTI Fusion, ásamt hinni stórfenglegu brasilísku söngkonu, Bruna Santana, koma fram á tónleikunum, en hljómsveitin var einnig gestur Söngfjelagsins fyrr á þessu ári. Miðaverð: 4500 kr.
https://tix.is/is/event/7127/lamadyrajol-/