Sumartónleikar í Skálholti 3. júlí - 5. ágúst.
Nú eru Sumartónleikar í Skálholti að ræsa vélina og fyrsta tónleikavikan að hefjast. Marco Fusi er ítalskur fiðlusnillingur sem leikur stórt hlutverk í þessari fyrstu tónleikaviku, en líka staðartónskáld Sumartónleikanna, þær Bergrún Snæbjörnsdóttir og Bára Gísladóttir. Caput hópurinn og fleiri listamenn koma einnig við sögu og sem dæmi má nefna að tvö erlend tónskáld koma til Íslands til að fylgja eftir verkum sínum, þeir Carlo Ciceri frá Ítalíu og Esaias Järnegard frá Svíþjóð.
Marco Fusi hefur starfað með mörgum af frægustu tónlistarmönnum álfunnar á sviði nútímatónlistar. Hann hefur einnig endurvakið áhuga á viola d‘amore hljóðfærinu og frumflutt fyrir það ný verk. Fjögur ný verk fyrir viola d‘amore og rafhljóð eru meðal þess sem verður frumflutt í næstu viku í Skálholti. Marco Fusi hefur á ferli sínum m.a. frumflutt verk eftir Billone, Sciarrino, Eötvös, Cendo og Ferneyhough og komið fram með stjórnendunum Pierre Boulez og Lorin Maazel. Hann er tíður gestur leiðandi hópa í samtímatónlist s.s. Klangforum Wien, MusikFabrik, Meitar Ensemble, Mivos Quartet, Ensemble Linea, Interface (Frankfurt), Phoenix (Basel) and Handwerk (Köln).
Fyrstu tónleikarnir, sem bera yfirskriftina Endurreisn, fara fram í Oddsstofu í Skálholtsbúðum á þriðjudagskvöldið og hefjast klukkan 20. Hér fyrir neðan eru einnig upplýsingar um tónleikahaldið 7.-8. júlí

NÝTT AF NÁLINNI Þriðjudagur 3. júlí
20:00 ENDURREISN Norræn verk fyrir viola d'amore Tónleikar með Marco Fusi, sérstökum gesti Caput-hópsins og Sumartónleikanna. Verk eftir Ylvu Lund-Bergner, Øyvind Mæland, Axel Rudebeck og Johan Svensson. Í Oddsstofu.
Laugardagur 7. Júlí
13:00 Viola d‘amore á vorum dögum Marco Fusi flytur erindi.
14:00 BRÆÐINGUR Hljóðfæri og rafhljóð Marco Fusi leikur fiðlusóló eftir Pierluigi Billone og frumflytur verk eftir Báru Gísladóttur, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Halldór Smárason og Þráin Hjálmarsson fyrir viola d'amore og rafhljóð.
16:00 SAMSPIL Marco Fusi og Caput Frumflutningur á Skeyti frá glerskurðarmanninum eftir Atla Ingólfsson. Einnig verður frumflutt ný útgáfa á Vana e d' amore fyrir viola d‘amore og kammerhóp eftir ítalska tónskáldið Carlo Ciceri. Á tónleikunum hljómar einnig verkið Pharos eftir Esaias Järnegard frá Svíþjóð.
Sunnudagur 8. júlí
14:00 AMORE TÓNAR OG FLEIRI FRAMANDI HLJÓÐ Marco Fusi og Caput-hópurinn
Blönduð efnisskrá. Verkin sem frumflutt voru á laugardeginum verða endurtekin.
Nánari upplýsingar um Sumartónleikana er að finna á heimasíðu, http://www.sumartonleikar.is/