top of page

Sumartónleikar 3. júlí-5. ágúst 2018


Sumartónleikar í Skálholtskirkju hafa verið starfandi síðan 1975 og staðið fyrir tónleikahaldi í Skálholtsdómkirkju í 5 – 6 vikur á hverju sumri. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu. Hvert sumar sækja milli 3000 og 4000 gestir hátíðina, en þeim fer fjölgandi með hverju ári. Það má því segja að hátíðin sé einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi að sumrinu til.

​Staðartónskáld Bára Gísladóttir og Bergrún Snæbjörnsdóttir.

Aðgangur ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum.

Tónleikatímar um helgar klukkan 14:00 og 16:00. Eitt helsta markmið hátíðarinnar er að stuðla að nýsköpun íslenskrar kirkjutónlistar. Tónverkin sem frumflutt hafa verið á hátíðinni nálgast 200, eftir öll helstu tónskáld Íslands. Flestir helstu tónlistarmenn þjóðarinnar hafa komið að starfi hátíðarinnar á starfsferli sínum en jafnframt hafa fjölmargir virtir erlendir flytjendur sótt Sumartónleika heim ár hvert. Hátíðin hefur skapað sér sess sem mikilvæg tónlistarhátíð á heimsvísu, sérstaklega hvað varðar flutning á tónlist 17. og 18. aldar.

Framkvæmdastjóri: Guðrún Birgisdóttir sumartonleikar.skalholt@gmail.com, s. 8240638 Stjórn: Margrét Bóasdóttir (formaður) Kolbeinn Bjarnason Tryggvi M. Baldvinsson

Sjá heimasíðu sumartónleikanna fyrir frekari upplýsinga.

Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page