top of page

Óskalögin við Orgelið - Fimmtudaga kl 11:00 - 12:00


Óskalögin við orgelið er viðburður fyrir alla sem hafa gaman af því að hlusta á tónlist og sérstaklega að fá að velja næsta lag!


Fimmtudagana 1, 7 og 14 júlí kl 11:00-12:00


Jón Bjarnason Organisti Skálholtsdómkirkju er eins og lifandi glymskratti því hann getur spilað nánast hvað sem er á orgelið.

Viltu heyra hvernig Abba, Queen eða Kaleo hljóma á orgelið? Hvað með öll íslensku sönglögin eða sálmana? Jón getur spilað þetta allt.


Þið mætið í kirkjuna, veljið lög af lista og Jón spilar ykkar óskalag. Viðburðurinn er tilvalinn fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa sem hafa gaman að því að hlusta á lög og jafnvel taka lagið. VIð hvetjum ykkur til að koma í kirkjuna, njóta samveru og tónlistar.


Viðburðurinn er hluti af fjáröflun til fegrunar Skálholtsdómkirkju. Tekið er á móti frjálsum framlögum.

Þátttakendur fá hádegisverðartilboð á Veitingahúsið Skálholti

Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page