Víðförul íslensk Biblía falin Skálholti til varðveislu
- Aug 22
- 3 min read

Víðförul íslensk Biblía falin Skálholti til varðveislu
„Hér hefur Skálholti og Bókhlöðunnar í Skálholti verið sýndur einstakur hlýhugur og traust“, segir formaður stjórnar Skálholts er frumeintak af Steinsbiblíu var afhent til varðveislu á Skálholtsstað.
Stór stund var í Skálholti föstudaginn 21. ágúst, þegar afkomendur hjónanna Gísla Guðmundssonar og Guðríðar Erlendsdóttur, afhentu Skálholtsstað frumeintak af Steinsbiblíu sem prentuð var á Hólum í Hjaltadal á árunum 1728-1734.
Saga þessarar biblíu er einstaklega áhugaverð, en hún komst í eigu þeirra Gísla og Guðríðar þegar þau bjuggu í Winnipeg, Manitoba, á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Þar starfaði Gísli sem prentari hjá Lögberg-Heimskringla sem prentaði m.a. fréttablað Vestur-Íslendinga í Kanada, og Guðríður var bókavörður við íslenskudeild Manitoba-háskólans í Winnipeg.
Ekki er vitað um sögu biblíunnar fram að því, en víst er að hún hefur komið með íslenskum innflytjendum til vesturheims og gegnt þannig hlutverki trúar- og menningarbrúar milli gamla og nýja heimsins.
Steinsbiblía er svo kölluð vegna þess að Steinn Jónsson biskup á Hólum bar veg og vanda af þýðingu, uppsetningu og prentun á henni. Þetta var þriðja íslenska biblíuþýðingin, og var ekki síst ráðist í útgáfu á henni vegna þess að skortur var á þeim biblíum sem áður höfuð verið prentaðar.
Í geymdinni hefur þessi tiltekna biblíuútgáfa þótt frekar dönskuskotin og því ekki framsækin í notkun íslenskrar tungu, sem þótti um tíma afskaplega ófínt. En síðari rannsóknir leiða til að Steinn Jónsson hafi einmitt verið að nota íslensku þess tíma sem Biblíunni var ætlað að tala til. Og þar er danskan og dönsk áhrif auðvitað mjög fyrirferðamikil enda styðst Steinn biskup mjög við texta dönsku Biblíunnar í þýðingu sinni.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Skálholtsprestakalli, sagði í stuttu ávarpi við tilefnið: „Það er áhugavert fyrir okkur sem lifum við ofgnótt á öllum sviðum, líka þegar kemur að prentuðum bókum, hvað bækur – og Biblían – voru á þeim tíma sem Steinsbiblía kemur út, takmörkuð gæði og í raun utan seilingar þorra almennings. Þess vegna verður saga einstakra gripa svo áhugaverð og spennandi – og við hugsum um hvað þessi bók sem hér er færð Skálholti í dag hefur gengið í gegnum og hverjir hafa á þessum langa tíma farið höndum um hana. Við hvaða aðstæður var lesið úr henni og hverju hefur þessi bók orðið vitni að – í gamla og nýja heiminum?”
Um Bókhlöðuna í Skálholti
Þorsteinn Pálsson, formaður stjórnar Skálholts, veitti Steinsbiblíunni viðtöku fyrir hönd Staðarins og þakkaði einstakan hlýhug og traust af hálfu fjölskyldunnar sem biblíuna gefur. Þorsteinn rifjaði upp sögu bókasafnsins í Skálholti, sem á sér nokkuð langa sögu og býr yfir margri gerseminni. Um langa hríð var safnið til húsa í turni Skálholtsdómkirkju
en hefur núna fengið öruggan samastað í Gestastofunni, þar sem aðbúnaður allur er eins og best verður á kosið.
Í sama húsnæði er nú unnið að því að koma upp Prentsögusetri – menningarsögulegu safni um prentsögu Íslendinga. Stefnt er að frágangi og opnun fyrir almenning áður en langt um líður.
Dæmi úr Steinsbiblíu
Hér má lesa þýðingu á 23. Davíðssálmi eins og hann birtist í Steinsbiblíu.
Drottinn er minn hirðir mig mun ekki bresta. Hann mun láta mig liggja í fögrum grashögum hann mun reka mig (hægt) til hægt rennandi vatns. Hann vill viðsnúa minni sálu reka mig á réttlætisins stígum fyrir síns nafns sakir. Nær ég jafnvel skyldi ganga í dauðans skugga dal vil ég ekki óttast fyrir illu því þú ert með mér, þinn sproti og þinn stafur þeir munu hugga mig. Þú reiðir eitt borð fyrir mér móti mínum fjandmönnum, þú smyr mitt höfuð með olíu, minn bikar er fullur. Gæska og miskunnsemi mun þó fylgja mér alla mína lífdaga og ég mun vera í Drottins húsi marga daga.
Skálholt þakkar af heilum hug þessa góðu gjöf og traustið sem Staðnum er sýnt með henni.





Comments